Stjórn Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) gagnrýnir harðlega fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd Alþingis, þau Ásbjörn Óttarsson, Kristján Þór Júlíusson og Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, fyrir stuðning sinn við nýtt Icesave frumvarp.

Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá SUS en í nefndaráliti sem þremenningarnir lögðu fram í dag er fullum stuðningi lýst við frumvarp ríkisstjórnarinnar.

„Engin tilraun er gerð af hálfu þremenninganna til þess að útskýra hvers vegna íslenskir skattgreiðendur bera nú skyndilega ábyrgð á innlánum Breta og Hollendinga,“ segir í yfirlýsingu SUS.

„Þingmennirnir virðist í blindni treysta því mati stjórnvalda að samningurinn muni „aðeins“ kosta skattgreiðendur um 50 milljarða króna. Barnalegt er að treysta á vonina eina. Bæði er mikil óvissa um það hvað fæst fyrir eignir Landsbankans og hvernig gengi krónunnar mun þróast.“

Þá segja ungir sjálfstæðismenn að áhættan af þróun þessara þátta liggi að öllu leyti hjá íslenskum skattgreiðendum sem með samningunum þurfa að taka á sig skuldbindingar í erlendri mynt.

„Þannig má nefna að ef krónan veikist um 2% á ársfjórðungi, fyrsta greiðslan úr þrotabúi Landsbankans berst ekki fyrr en 1. apríl 2012 og endurheimtur verða 10% minni en áætlað er þá fer kostnaðurinn úr 50 milljörðum í 233 milljarða,“ segir í yfirlýsingunni.

„Grundvallarspurningin er ekki hvernig og á hvaða kjörum eigi að greiða kröfur Breta og Hollendinga, heldur hvort. Þeirri grundvallarspurningu er enn ósvarað. Ungir sjálfstæðismenn hafa frá upphafi hafnað að þeirra kynslóð, og kynslóð barna þeirra, verði bundin á skuldaklafa Icesave án þess að réttmætur grundvöllur sé til þess og að þær séu undirseldar mikilli áhættu um endanlega fjárhæð þeirra skulda.“

Þá telur stjórn SUS tillögu fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd vera fullkomin svik við þá stefnu Sjálfstæðisflokksins sem samþykkt var á landsfundi 2010 um að hafna beri löglausum kröfum Breta og Hollendinga í Icesave málinu.