Svíturnar á Grand hótel eru þrjár talsins. Forsetasvíturnar, Ásgarður og Útgarður, eru í turni hótelsins og eru 80 til 90 fermetrar með aðliggjandi 40 fermetra svefnherbergi. Svítunum fylgja öll helstu þægindi eins og morgunmatur á herbergi, skreyttir ávaxtadiskar, konfekt og blóm bíða í vösum við komu gestanna. Þriðja svítan er falleg 140 fermetra íbúð í Sigtúni.

Hönnun með sterka tilvísun í norræna Goðafræði er ríkjandi í svítunum. Ásgarður er heimili ásanna í norrænni goðafræði og Útgarður heimili jötunsins í Útgarða-Loka.

Svíturnar njóta mikilla vinsælda og eru mikið bókaðar.