Þorsteinn B. Friðriksson segist ekki hafa átt von á því að tölvuleikurinn Quiz Up myndi ná jafn skjótum árangri og hann gerði. Fyrirtækið hlaut Frumkvöðlaverðlaun Viðskiptablaðsins í ár.

VB Sjónvarp ræddi við Þorstein á Hótel Sögu þar sem verðlaunin voru veitt.