Þorpið Zisiqiao er óvenjulegt fyrir þær sakir að þar búa um þrjár milljónir snáka í sátt og samlyndi við þrjú þúsund íbúa. Ástæðan fyrir þessari óvenjulegu samsetningu íbúa er snákaræktun sem fer fram í þorpinu en yfir eitt hundrað snákabú er að finna í Zisiqiao. Bbc.com segir frá þessu í dag .

Snákarnir í Zisiqiao eru engir venjulegir snákar. Einn er kallaður „fimm skrefa snákurinn“ en það er vegna þess að ef hann bítur þig þá kemstu bara fimm skref áður en þú hnígur niður og deyrð.

Snákarnir eru ræktaðir fyrir hefðbundnar kínverskar lækningar og síðan eru þeir einnig vinsælir á veitingastöðum.