Sjálfkjörið er í stjórn Eimskips á hluthafafundi sem haldinn verður á fimmtudag. Tvö ný koma inn í stjórn félagsins en þau Baldvin Þorsteinsson og Guðrún Ó. Blöndal. Þau Baldvin og Guðrún koma í stað þeirra Richards Winstons Mark d'Abo, sem er stjórnarformaður félagsins og Helgu Melkorku Óttarsdóttur. Víglundur Þorsteinsson, varaformaður stjórnar, Hrund Rúdolfsdóttir og Lárus L. Blöndal verða áfram í stjórn félagsins.
Baldvin Þorsteinsson er framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar hjá Samherja en félagið Samherji Holding keypti 25,3% hlut í félaginu í júlí . Baldvin er auk þess stjórnarformaður Olíuverslunar Íslands, situr í stjórn Jarðboranna, kanadíska sjávarútvegsfyrirtækisins Newfound Resources Limited Ltd. og norska sjávarútvegsfyrirtækisins Nergard A/S.
Guðrún Ó. Blöndal er varamaður í bankaráði Landsbankans og var framkvæmdastjóri Nasdaq verðbréfamiðstöðvar frá 2013 til 2018.