Úrvalsvísitalan [ OMXI15 ] hefur lækkað um 1,1% síðan markaðir opnuðu kl. 10 í Kauphöllinni.

Ekkert fyrirtæki hefur hækkað en Spron [ SPRON ] hefur lækkað mest fyrirtækja eða um 2,9%. Þá hefur Glitnir [ GLB ] lækkað um 1,7% og FL Group [ FL ] um 1,5%.

Velta með hlutabréf er aðeins um 380 milljónir og þar af eru um 123 milljónir með bréf í Glitni.