Valitor fækkar starfsmönnum sínum um 60 í heildina, þar af 9 hér á landi, en restin af uppsögnunum verða í starfstöðvum félagsins í Danmörku og Bretlandi. Á seinni hluta síðasta árs fækkaði félagið starfsmönnum um 30.

Eins og Viðskiptablaðið fjallaði um á síðasta degi síðasta árs fellur til 600 milljóna króna kostnaður á Arion banka, móðurfélag fyrirtækisins á fjórða ársfjórðungs síðasta árs, vegna endurskipulagningar félagsins sem samþykkt var á stjórnarfundi félagsins þann 30. desesember. Í kjölfar samþykktarinnar hefur nú verið hafist handa við endurskipulagningu  á félaginu til að styrkja kjarnastarfsemi þess og snúa við taprekstri að því er fyrirtækið greinir frá.

Breytingarnar valda því að starfsfólki Valitor fækkar á öllum starfsstöðvum fyrirtækisins. Ráðgert er að með þeim aðgerðum sem nú er ráðist í fækki starfsfólki um nálægt 60 manns. Jafnframt er gripið til almennra hagræðingaraðgerða til að treysta reksturinn.

Með þeim aðgerðum sem nú er ráðist i fækkar starfsfólki félagsins um nálægt 60, úr nærri 390 starfsmönnum í um 330. Þar með eru taldar stöður sem hafa losnað hjá félaginu og ekki er ráðið í að nýju. Breytingarnar taka til allra starfsstöðva fyrirtækisins.

Alls er um að ræða 9 uppsagnir á Íslandi og hafa þær þegar tekið gildi. Aðrar mannabreytingar varða starfsstöðvar Valitor í Danmörku og Bretlandi. Á ofanverðu síðasta ári var starfsfólki Valitor fækkað um nærri 30 manns. Þannig nemur fækkun síðustu 6 mánuðina næstum 90 starfsmönnum.

Valitor enn í söluferli

Samhliða mannaflabreytingum er hagrætt víða á öðrum sviðum starfseminnar, m.a. er verið að endursemja við birgja, draga saman í húsnæði og fækka vörum í þróun. Valitor er í söluferli þar sem fyrirhugað er að selja félagið í heild eða að hluta.

Viðar Þorkelsson , forstjóri Valitor segir markmiðið vera skýrt, að snúa við taprekstri og tryggja félaginu sterkan rekstrargrundvöll til framtíðar.

„Það er aldrei góður tími til að segja upp starfsfólki og sjá á bak hæfum samstarfsmönnum. Hins vegar leggjum við áherslu á að hefja nýtt ár með gjörbreyttum rekstrarforsendum. Með þessum aðgerðum ætlum við okkur að fara úr tapi yfir í rekstrarhagnað fyrir afskriftir og fjármagnsliði (e. EBITDA),“ segir Viðar.

„Við erum að styrkja og þétta rekstur og kjarnaþjónustu félagsins á okkar mörkuðum og þar lítum við ekki síst til mikilvægis heimamarkaðsins þar sem við stöndum traustum fótum. Eftir róttækar og erfiðar breytingar horfum við bjartari augum fram á veg og munum sækja fram á ný. Þar vil ég sérstaklega benda á sóknarfæri varðandi samvinnu við öflug erlend fjártæknifyrirtæki á borð við Stripe, Klarna og Paymentsense þar sem samstarfslíkan okkar hefur sannað gildi sitt.“

Með framangreindum skipulagsbreytingum er ætlunin að draga úr fjárfestingarþörf og rekstrarkostnaði sem aftur er ætlað að hafa jákvæð áhrif á afkomu félagsins. Valitor er alþjóðlegt greiðslulausnafyrirtæki sem býður fjölbreytta þjónustu á sviði færsluhirðingar,  greiðslugátta og útgáfu og segir félagið að fjárhagsstaða þess sé sterkt.