Meirihluti Sjálfstæðisflokksins í bæjarstjórn Árborgar myndi falla ef gengið yrði til kosninga ný, samkvæmt niðurstöðum nýrrar könnunar Félagsvísindastofnunar Háskóla Íslands fyrir Morgunblaðið.

Sjálfstæðisflokkurinn fengi 33,3% atkvæða og fjóra menn. Flokkurinn fékk 50,1% í kosningunum 2010 og fimm bæjarfulltrúa af níu. Framsóknarflokkurinn myndi bæta við sig manni og fylgið fara úr 19,6% í kosningunum fyrir tæpum fjórum árum í 15,9%. Björt framtíð kæmi ný inn í bæjarstjórn Árborgar með 15,1% fylgi og einn mann inn. Samfylkingin myndi tapa manni og fá 13,5% atkvæða. VG myndu bæta við fylgið um þrjú prósentustig, fá 13,5%, og halda sínum bæjarfulltrúa. Píratar fengju 5,6% ef kosið yrði nú, að því er segir í Morgunblaðinu.

Könnunin fór fram dagana 7. til 21. nóvember sl. Úrtakið var 375 manns og svarhlutfallið 62%.