Fyrstu tíu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 388,2 milljarða króna en inn fyrir 328,5 milljarða króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd nam 59,7 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 47,1 milljarð á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 106,8 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður að því er kemur fram í frétt Hagstofunnar.

Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 46,9 milljarða króna og inn fyrir 30,5 milljarða króna fob (33,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 16,4 milljarða króna. Í október 2008 voru vöruskiptin hagstæð um 13,2 milljarða króna á sama gengi.

Sjávarafurðir voru 44,5% alls útflutnings

Í frétt Hagstofunnar kemur fram að fyrstu tíu mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 135,9 milljörðum eða 25,9% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,8% minna en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 49,8% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 28,7% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í útflutningi á skipum og flugvélum og á útflutningi sjávarafurða.

Innflutningur

Fyrstu tíu mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 242,6 milljörðum eða 42,5% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í innflutningi nær allra liða innflutnings, mest í hrá- og rekstrarvöru, flutningatækjum og fjárfestingavöru.