Warren Buffett, forstjóri Berkshire Hathaway, segist sjá tækifæri í fjárfestingum á húsnæðislánaskuldabréfum og undirmálslánum.

Þetta kemur fram í viðtali sem Reuters tók við hann nýverið.

Buffett segir að  Berkshire Hathaway, hafi þegar fjárfest á húsnæðismarkaði í gegnum fyrirtækið Clayton Homes sem er í eigu þess. Jafnframt segir hann frekari fjárfestingar á þessu sviði hugsanlegar, jafnvel fjárfestingar í stærra lagi.

Warren Buffett er frægur fyrir fjárfestingar sínar í fyrirtækjum sem eru metin lágt. Hefur hann margsinnis hagnast á fyrirtækjum sem aðrir hafa misst trú á.