Nýlega bættust þau Friðrik Einarsson, Hafþór Ægir Sigurjónsson, Margrét Pétursdóttir og Róbert Ragnarsson við eigendahóp KPMG.

Hjá KPMG starfa um 320 manns á Íslandi og yfir 270 þúsund manns á heimsvísu í yfir 143 löndum.

Friðrik Einarsson hefur starfað á endurskoðunarsviði frá árinu 2005. Hann lauk meistaragráðu í endurskoðun og reikningsskilum frá Háskólanum í Reykjavík og öðlaðist löggildingu til endurskoðunarstarfa árið 2010. Friðrik hefur unnið á skrifstofu KPMG í Reykjavík, á Egilsstöðum og er nú í forsvari fyrir skrifstofu félagsins á Selfossi.

Einnig hefur hann verið í forsvari fyrir þróun og innleiðingu á stafrænum lausnum í endurskoðun og stýrir sérfræðiteymi í tölvuendurskoðun á endurskoðunarsviði.

Hafþór Ægir Sigurjónsson starfar á ráðgjafarsviði félagsins þar sem hann hefur stýrt sjálfbærniþjónustunni síðustu ár. Hann lauk doktorsprófi í verkfræði frá Tækniháskólanum í Danmörku (DTU). Hann hefur stundað kennslu og rannsóknir hjá DTU og Háskóla Íslands á sviði sjálfbærnimála.

Þá var Hafþór meðstofnandi ráðgjafarfyrirtækisins Circular Solutions, sem sérhæfði sig í sjálfbærnimálum, en fyrirtækið sameinaðist KPMG árið 2021. Hafþór var hluti af öflugu teymi sem hóf störf á ráðgjafarsviði KPMG við sameiningu félaganna.

Margrét Pétursdóttir hóf nýlega störf hjá KPMG en hún er löggiltur endurskoðandi og starfar á endurskoðunarsviði. Margrét bætist við sterkt sjálfbærniteymi KPMG og mun aðstoða við að leiða þjónustu félagsins við að veita óháða staðfestingu á sjálfbærniskýrslur fyrirtækja. Hún hefur starfað í faginu í hátt í þrjá áratugi og var nú síðast forstjóri endurskoðunar og ráðgjafarfyrirtækisins EY en hafði áður veitt endurskoðunarsviði félagsins forstöðu.

Þá hefur Margrét verið virk í félagsstarfi löggiltra endurskoðenda og var meðal annars formaður Félags löggiltra endurskoðenda á árunum 2015 til 2017. Hún situr í stjórn Alþjóðasamtaka endurskoðenda (IFAC) og hefur veitt stjórnarháttarnefnd samtakanna forstöðu.

Róbert Ragnarsson er nýr í eigandahópi KPMG og starfar á ráðgjafarsviði. Hann stundaði meistaranám í stjórnmálafræði við Háskólann í Árósum og Háskóla Íslands, þaðan sem hann útskrifaðist 2003. Róbert er reynslumikill sérfræðingur og stjórnandi úr opinbera geiranum.

Hann var bæjarstjóri Grindavíkurbæjar og Sveitarfélagsins Voga samtals í um 11 ár og þar áður verkefnastjóri í félagsmálaráðuneytinu. Róbert hóf störf á ráðgjafarsviði KPMG í mars 2022, en áður rak hann eigið ráðgjafarfyrirtæki í fimm ár. ​

„Það er okkur mikill fengur að fá þau Friðrik, Hafþór, Margréti og Róbert í eigendahópinn. Öll hafa þau mikla reynslu á sínum sérsviðum og njóta virðingar meðal viðskiptavina og samstarfsfólks. Með þau innanborðs er KPMG enn sterkari bæði út á við og inná við. Ég óska þeim til hamingju með áfangann og vil bjóða þau velkomin í eigendahóp KPMG,“ segir Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri KPMG.